Þjónusta
Tímarammi
Almennt er greiningartími 3-5 virkir dagar frá móttöku sýna.
Við bjóðum upp á hraðþjónustu ef þörf krefur 1-2 dagar.
Aðferðafræði
Matið við myglugreiningar byggir meðal annars á víðsjár (stereoscope)- og smásjárskoðun (microscope) og mögulega ræktunaraðferðum, ef þörf er talin á. Leitað er að undirliggjandi sveppþráðum (hyphae), grómyndun og öðrum einkennum sem benda til þess að örverur séu að vaxa inni í efninu en ekki eingöngu til staðar sem yfirborðsmengun. Slíkar greiningar geta gefið mikilvægar upplýsingar um umfang rakaskemmda, ástand byggingarefna og hvort þörf sé á frekari úrbótum eða fjarlægingu skemmds efnis.
Við asbestsgreiningar er notuð PLM (Polarized light microscopy) til greiningar á asbesttrefjum í byggingarefnum,
Greining
Rannsóknasetur bygginga býður upp á greiningu á sýnum úr byggingarefnum með það að markmiði að meta hvort rakaskemmdir og örveruvöxtur séu til staðar í efninu. Við greininguna er sérstaklega skoðað hvort myglusveppir og bakteríur hafi náð bólfestu í byggingarefninu og hvort merki séu um virkan vöxt.
Við tökum einnig að okkur að greina asbest ef grunur er um að það finnist í byggingarefnum.
Skýrsla með niðurstöðum og myndum er send í kjölfar greiningar ásamt upplýsingum um hvað myglan liggur djúpt, ef hún er til staðar og greind niður í ættkvíslar ef möguleiki er á.
Yfirlit rannsókna
Starfsemi RSB byggir á öguðum og rekjanlegum vinnubrögðum þar sem hvert sýni er skráð, merkt og meðhöndlað samkvæmt skjalfestum verklagsreglum. Við leggjum áherslu á nákvæmni, gagnsæi og faglega skýrslugjöf í öllum rannsóknum á byggingarefnum.




